Sport

Átti Hrafnhildur í raun að vera fimmta en ekki sjötta?

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir .
Hrafnhildur Lúthersdóttir . Vísir/Anton
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi á ÓL í Ríó í nótt en á undan henni var sundkona sem engin skilur af hverju fékk að keppa á Ólympíuleikunum í ár.

Rússneska sundkonan Julia Efimova vann silfur í sundinu en hún hefur fallið á lyfjaprófi oftar en einu sinni. Það var búið að dæma hana í bann frá leikunum en Alþjóðaólympíunefndin afturkallaði bannið og leyfði Efimovu að keppa.

„Ég sá þessa kínversku og mér leið illa fyrir hennar hönd. Mér fannst eins og hún væri að horfa á töfluna og hugsa: Ég hefði verið í þriðja sæti ef hún væri ekki þarna," sagði Hrafnhildur eftir sundið.

Shi Jinglin varð í fjórða sæti í sundinu en Julia Efimova náði ekki að synda hraðar en hin bandaríska Lilly King.

„Það er alltaf leiðinlegt en ég er allavega ánægð að þessu bandaríska vann. Þessi rússneska varð því í það minnsta ekki Ólympíumeistari. Það var ein á undan henni en það er ekkert sem við getum gert í þessu og þá þurfum við bara að fylgja henni eftir og reyna að vinna hana ef við getum," sagði Hrafnhildur.

Litháinn Ruta Meilutyte, sem vann gullið í London fyrir fjórum árum gagnrýndi það opinberlega þegar Julia Efimova fékk að keppa. Þegar hólminn var komið þá klikkaði Meilutyte algjörlega á úrslitasundinu og varð að sætta sig við sjöunda sætið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×