Bílar

Átta strokka Lada

Finnur Thorlacius skrifar
Hver segir að Lada sé ekki heppilegur bíll til brautaraksturs, sér í lagi þegar búið er að vopna hann með átta strokka Amerískri kraftavél. Það má segja að þarna sé komið hið fullkomna hjónaband austurs og vesturs og svona búinn er bíllinn afar hentugur til hressilegs aksturs á braut.

Þessu tók einhver frumlegur Ungverji uppá og skemmtir sér vel við aksturinn á þessari ungversku kappakstursbraut. Útlitslega eru ltlar breytingar á bílnum, en þó sést að á húddi bílsins er loftinntak til kælingar vélarinnar og bíllinn er sínu lægri á vegi en hefðbundin Lada.

Það hlýtur að vera freistandi fyrir eiganda þessa bíls að etja kappi við öfluga vestræna bíla á vegunum og skilja þá eftir í sótinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×