Innlent

Átta mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn sambýliskonu

Bjarki Ármannsson skrifar
Karlmaður á Akureyri var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað ráðist gegn sambýliskonu sinni.
Karlmaður á Akureyri var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað ráðist gegn sambýliskonu sinni. Vísir/Pjetur/Getty
Karlmaður á Akureyri var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi við Héraðsdóm Norðurlands eystra á dögunum fyrir að hafa ráðist gegn sambýliskonu sinni, niðurlægt hana og haft af henni fé á tímabilinu nóvember 2011 til febrúar 2013.

Ríkissaksóknari höfðaði málið í janúar síðastliðnum. Maðurinn var sakfelldur í einum ákærulið sem sneri að ofbeldi gegn konunni en sýknaður í þremur öðrum. Var honum gert í einum þeirra ákæruliða að hafa ráðist gegn konunni, slegið hana, tekið hana hálstaki og sett hné í kvið hennar. Þegar sú árás átti að hafa átt sér stað, var konan komin rúmlega fimm mánuði á leið með barn þeirra tveggja. 

Manninum er einnig gert að sök að hafa tvisvar millifært fjármuni í gegnum heimabanka konunnar af bankareikningi hennar inn á eigin bankareikning án hennar heimildar. Hann hafi haft upplýsingar um aðgangsorð og leyninúmer sambýliskonu sinnar. Í fyrra skiptið hafi hann millifært á sig 60.000 krónur, tveimur dögum síðar hafi hann millifært 119.000 krónur. Maðurinn var sýknaður í ákæruliðnum sem sneri að fyrra skiptinu en sakfelldur í þeim síðari.

Konan segir sambúðina í fyrstu hafa gengið vel en þau síðar farið að rífast og „kýtingur“ verið milli þeirra. Maðurinn hafi á þessum tíma drukkið mikið og verið ofbeldisfullur með áfengi. Hann hafi sífellt lítillækkað hana, kallað hana „heimska“ og sagt að hún væri „sori og viðbjóður.“ Maðurinn sagði fyrir dómi sér ekki finnast það andlegt ofbeldi þegar tveir deili. Hann hafi raunar hallmælt móður sambýliskonu sinnar, því þau eigi ekki skap saman, en að konan hafi sömuleiðis „rakkað fjölskyldu hans niður.“

Maðurinn á að baki langan sakaferil fyrir utan áðurnefnd brot. Í júní 2012 hlaut hann tvo dóma fyrir brot gegn umferðarlögum og var sviptur ökuréttindum ævilangt. Í nýjasta dómnum kemur fram að hann hefur farið í meðferð vegna áfengisvanda síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×