Lífið

Átta leikarar sem sjást bæði í Harry Potter og Game of Thrones

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ciaran Hinds er nánast óþekkjanlegur.
Ciaran Hinds er nánast óþekkjanlegur. mynd/warner bros/hbo
Ævintýraheimar J.K. Rowling og G.R.R. Martin hafa notið gífurlegra vinsælda undanfarin ár. Rowling skapaði sjöleikinn um galdrastrákinn Harry Potter og ævintýr hans og Martin stefnir að því að gefa út jafnmargar bækur um valdatafl höfuðætta í Westeros. 

Spilliviðvörun: Áður en lengra er haldið þykir til siðs að spilla ekki söguþræði fyrir báðum sem hvorki hafa fylgst með Harry Potter eða Game of Thrones. Því fylgir hér, til öryggis, lauflétt viðvörun um að það sem á eftir fylgir gæti flokkast sem spilliefni. 

Höskuldar-viðvörun númer tvö.

Þeir sem óvart hafa smellt á greinina og hafa ekki í hyggju að halda áfram að lesa geta hætt við núna en að öðrum kosti haldið áfram. 

Fyrstan ber að nefna til sögunnar Ciaran Hinds sem kemur fram í síðustu Harry Potter myndinni en þar bregður hann sér í hlutverk Aberforth Dumbledore, bróður skólameistarans sáluga. Í Game of Thrones leikur hann hins vegar Mance Rayder, kongunginn fyrir norðan veggjarins. 

Hinds hefur að auki komið við í kvikmyndum á borð við Tinker Tailor Soldier Spy, Munichn, Road to Perdition og Frozen en í síðastnefndu myndinni ljáir hann afanum rödd sína.

Julian Glover.mynd/warner bros/hbo
Það er ekki gerð krafa um að fólk átti sig á þessu enda er aðeins rödd Julian Glover að finna í Harry Potter myndunum. Þar talar Glover fyrir Aragog, hina tröllvöxnu gælukönguló Hagrids, í annarri myndinni um Leyniklefann. Í þáttaröð HBO um Krúnuleikana er hann hinsvegar Grandmaester Pycelle. 

Glover er gamalreyndur leikari og hefur brugðið fyrir í mörgum stórvirkjum í gegnum tíðina. Má þar nefna Indiana Jones and the Last Crusade og fimmtu Star Wars myndinni (eða annarri, eftir því hvernig á málið er litið). Þá lék hann einnig í Troy og aðdáendur Taggar gætur hafa séð hann í nokkrum þáttum.

David Bradley hefur tekist að afla sér óvinsælda í báðum hlutverkum.mynd/warner bros/hbo
David Bradley verður seint sakaður um að vera í vinsældakeppni þegar kemur að vali á hlutverkum. Í Harry Potter tók hann að sér hlutverk hins önuga húsvarðar Argus Filch sem þreytist ekki á að gera Harry Potter lífið leitt. Sömu sögu er eflaust hægt að segja um Harry sem nánast lifði fyrir að koma sér í vandræði innan veggja skólans.

Ekki nóg með að hafa ákveðið að vera Filch þá sagði hann einnig já við því að leika hinn aldna Walder Frey. Frey stundar það að lifa of lengi og taka sér nýjar eiginkonur sem ala honum alltof mörg börn.

Lengi hafði Tully-ættin efast um hollustu hans og ekki dró úr því þegar hann mætti alltof seint í bardagann við Trident á meðan byltingu Robert Baratheon stóð. Það litla traust sem fólk bar til hans hvarf svo líkt og dögg fyrir sólu í hinu rauða brúðkaupi þar sem Robb Stark og fylgjendur hans voru gerðir höfðinu styttri.

Bradley hefur einnig brugðið fyrir í öðrum myndum. Meðal þeirra þekktustu má nefna Hot Fuzz og Captain America: The First Avenger.

Ralph Inesonmynd/warner bros/hbo
Ralph Ineson fékk ekki stórt hlutverk í Harry Potter og sömu sögu er að segja með Game of Thrones. Þó verður að viðurkennast að báðar persónurnar eru talsvert fyrirferðarmeiri í bókunum.

Í Harry Potter leikur Ineson annan helming Carrow-systkina, dráparann Amycus. Honum bregður fyrir í lokamyndinni en þá hafa systkinin verið ráðin sem kennarar við Hogwarts-skóla.

Í heimi Martin tekst Ineson á við hlutverk Dagmer Cleftjaw en honum bregður fyrir þegar Theon Greyjoy ræðst á norðrið. Dagmer má meðal annars sjá bregða fyrir þegar hann banar Maester Luywen. Að endingu hlýtur hann ömurleg örlög þegar Ramsay Snow flær hann lifandi í kjölfar uppgjafar hinna Járnbornu.

Einnig er unnt að rekast á Ineson í myndum á borð við The Witch, Kingsmen: The Secret Service og Guardians of the Galaxy.

Natalie Tena.mynd/warner bros/hbo
Natalia Tena bregður fyrst fyrir í Harry Potter bókunum, og myndunum, í þeirri fimmtu um Fönixregluna. Þar leikur hún Nymphadora Tonks en krefst þess að hún sé kölluð Tonks. Síðar meir giftist hún varúlfinum Remus Lupin en bæði falla þau í bardaganum um Hogwarts að lokum. 

Í Game of Thrones leikur hún villingin Oshu sem meðal annars bjargar Bran og Rickon úr klóm hinna Járnbornu þegar Winterfell féll. Hún tekst á við það hlutverk að halda Rickon óhultum og tekst það í nokkrar þáttaraðir þar til Umbers selja þau í hendur Ramsay Bolton, áður kenndur við Snow. Hún er einn fjölmargra karaktera sem fellur fyrir hendi Ramsay.

Ian Whyte í hlutverkum sínum.mynd/warner bros/hbo
Ian Whyte leikur iðulega risa hvar sem hann kemur sökum þess að hann er 2,16 metrar á hæð. Sú er einmitt raunin í Harry Potter og Game of Thrones. 

Í kvikmyndinni um Eldbikarinn bregður hann sér í líki Madame Olympe Maxime þegar sýna þarf hve hávaxin hún er. Hann er að vísu óþekkjanlegur í þau skipti. 

Whyte hefur komið víða við í Game of Thrones. Í fyrstu þáttaröðunum leikur hann White Walker og hann lék Gregor „Fjallið“ Clegane áður en okkar ástkæri Hafþór Júlíus Björnsson var ráðinn í það hlutverk. Að undanförnu hefur hann brugðið sér í líki risans Wun-Wun. Það gerði hann í síðasta skipti í Bardaga bastarðanna. 





Michelle Fairley í hlutverkum sínum.mynd/warner bros/hbo
Michelle Fairley bregður fyrir í örskamma stund í fyrri hluta Harry Potter og Dauðadjásnanna. Þar leikur hún Monicu Granger, móður Hermoine, en hún sést þar sem Hermoine eyðir minningum foreldra sinna um sig áður en hún slæst í för með Harry Potter að leita að helkrossum Voldemort.

Hlutverk hennar í Game of Thrones er miklu, miklu stærra en þar leikur hún Catelyn Stark, eiginkonu Ned Stark og móður barna hans (að Jon Snow undanskildum). Catelyn er ein þeirra sem er felld í rauða brúðkaupinu. Aðdáendur bíða nú spenntir eftir því að sjá hvort hún snúi aftur sem Lady Stoneheart. 

Meðal annarra verka Fairlay má nefna hlutverk í Philomena, The Others og þáttum á borð við Misfits og Taggart.

Bronson Webb bregður fyrir í báðum heimum.mynd/warner bros/hbo
Þið verðið að kallast mannglögg ef þið hafið tekið eftir Bronson Webb á báðum vígstöðvum. Í þriðju Harry Potter myndinni, fanginn frá Azkaban, leikur hann nafnlausan Slytherin nemanda sem stendur að baki Draco Malfoy. Að öðru leiti bregður honum ekki fyrir. 

Svipaða sögu er að segja af Game of Thrones. Í fyrsta þættinum leikur hann Will, meðlim Nights Watch, og hann sést aðeins á fyrstu mínútunum. Í upphafi eltir hann Ser Waymar Royce inn í norðrið þar sem þeir leita að villingaþorpi sem lagt hafði verið í eyði. Þeir áttuðu sig of seint á því að hinir dauðu voru í kringum þá og féllu flestir fyrir þeirra hendi. Will komst undan, flúði suður og var að endingu hálshöggvin af Eddard Stark fyrir að yfirgefa bræður sína.

Fyrir þá sem vilja leita að Webb í fleiri myndum þá sést hann í Pusher, Batman: The Dark Knight, Pirates of the Caribbean: On Strangers Tides og RocknRolla svo fáeinar myndir séu nefndar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×