Handbolti

Átta íslensk mörk í sjöunda sigri Aalborg í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Janus Daði skoraði fjögur mörk í kvöld.
Janus Daði skoraði fjögur mörk í kvöld. vísir/getty
Aalborg er komið með fimm stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir öruggan sigur, 34-19, á Midtjylland í heimavelli í kvöld.

Þetta var sjöundi sigur lærisveina Arons Kristjánssonar í röð en þeir virðast óstöðvandi um þessar mundir.

Íslendingarnir þrír í liði Aalborg skoruðu samtals átta mörk í leiknum.

Janus Daði Smárason gerði fjögur þeirra, Stefán Rafn Sigurmannsson þrjú og Arnór Atlason eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×