Handbolti

Átta íslensk mörk í sigri Emsdetten | Fannar næstmarkahæstur hjá Hagen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oddur skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten í kvöld.
Oddur skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten í kvöld. vísir/vilhelm
Oddur Gretarsson og Ernir Hrafn Arnarson skoruðu báðir fjögur mörk fyrir Emsdetten sem vann þriggja marka sigur, 20-23, á Empor Rostock í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Emsdetten er í 11. sæti deildarinnar með sex stig en liðið mætir Aue í Íslendingaslag á sunnudaginn. Anton Rúnarsson komst ekki á blað í liði Emsdetten í kvöld.

Þá átti Fannar Þór Friðgeirsson fínan leik fyrir Eintracht Hagen sem tapaði 29-24 fyrir Nordhorn-Lingen á útivelli.

Fannar skoraði sex mörk og var næstmarkahæstur í liði Hagen sem er í 14. sæti deildarinnar með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×