Glamour

Átta flottustu dressin frá Yeezy Season 5

Ritstjórn skrifar
Myndir/Yeezy
Kanye West frumsýndi Yeezy Season 5 á tískuvikunni í New York í gærkvöldi. Engar myndavélar voru leyfðar á sýningunni en þar var fyrirsætunum varpað um á stóra skjái sem voru um víð og dreif um salinn. 

Eftir sýninguna var gefin út "look book" með öllum dressum sýningarinnar. Það var margt spennandi að finna en það er greinilegt að Kanye West er að fara með merkið sitt í nýjar stefnur fyrir haustið. Í fyrsta skiptið sér maður gallabuxur og skyrtur hjá Yeezy sem og margt fleira spennandi sem er líklegt til vinsælda. 

Hér fyrir neðan höfum við valið okkar uppáhalds dress frá sýningunni í gær. 






×