Innlent

Átta dómar fallið gegn Íslandi síðastliðinn áratug

Sveinn Arnarsson skrifar
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir að kanna þurfi hvort Íslendingar eigi að eiga aðild að dómstólnum.
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir að kanna þurfi hvort Íslendingar eigi að eiga aðild að dómstólnum. Nordicphotos/AFP
Á síðasta áratug hafa átta dómar fallið gegn íslenska ríkinu hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Í flestum tilfellum er um að ræða dóma Hæstaréttar sem Mannréttindadómstóllinn hefur fundið að.

Þann 21. október síðastliðinn vann Erla Hlynsdóttir blaðamaður mál fyrir Mannréttindadómstólnum. Þótti sýnt að vegið hefði verið að frjálsri tjáningu Erlu og frelsi fjölmiðla til að taka við og miðla efni. Er þetta í annað sinn sem Erla Hlynsdóttir vinnur mál fyrir dómstólnum.

Í ljós kemur að á síðastliðnum tíu árum sem dómstóllinn hefur tekið fyrir mál sem snúa að íslenska ríkinu, og þar sem hann finnur brotalamir á dómum Hæstaréttar, hefur Gunnlaugur Claessen fellt fimm þessara dóma. Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson og Hrafn Bragason felldu fjóra dóma sem Mannréttindadómstóllinn hefur fundið að.

jón Steinar Gunnlaugsson
Vill skoða að hætta samstarfi við Mannréttindadómstólinn

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir málafjöldann sem liggur fyrir dómstólnum standa honum fyrir þrifum. „Við Íslendingar höfum verið aðilar að þessu samstarfi í nokkra áratugi. Þróunin ytra hefur verið á þá leið að málafjöldinn hefur vaxið gríðarlega fyrir dómstólnum. Nú er svo komið að hann ræður ekki við allan þennan fjölda,“ segir Jón Steinar.

Einnig kemur í ljós, þegar hæstaréttardómarnir eru skoðaðir, að aðeins tvisvar hafa dómarar verið ósammála. Markús Sigurbjörnsson og Gunnlaugur Claessen skrifuðu sérálit í dómi sem féll í Hæstarétti í máli Péturs Þórs Sigurðssonar gegn Landsbankanum. Þar voru þeir þó í aðalatriðum sammála dómsniðurstöðu meirihluta Hæstaréttar. 

Ólafur Börkur Þorvaldsson er eini hæstaréttardómarinn sem skrifað hefur sérálit þar sem hann er ósammála meirihluta Hæstaréttar. Benti Ólafur Börkur einmitt á lög um Mannréttindasáttmála Evrópu áliti sínu til stuðnings. Að öðru leyti hafa dómarnir fallið samhljóða. 

Jón Steinar segir dómstólinn ekki hafinn yfir gagnrýni. „Nú getur einn dómari tekið ákvörðun um að vísa máli frá án þess að neinn rökstuðningur fylgi ákvörðuninni,“ segir Jón Steinar sem vill að kannað verði hvort Íslendingar eigi að taka þátt í þessu samstarfi. „Við getum ekki verið aðilar að dómstól þar sem málum er vísað frá með þessum hætti,“ segir Jón Steinar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×