Innlent

Víglínan í heild sinni

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson starfandi fjármálaráðherra var gestur í Víglínunni samt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, Oddný G. Harðardóttur fyrrverandi fjármálaráðherra og Halldóri Halldórssyni oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Sex vikur eru liðnar frá kosningum án þess að búið sé að mynda ríkisstjórn. Alþingi kom hins vegar saman á þriðjudag og bæði fjárlög og bandormur starfandi ríkisstjórnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum hafa verið lögð fram og eru frumvörpin bæði komin til nefndar. Þetta er í fjórða sinn frá árinu 1945 sem starfsstjórn leggur fram fjárlagafrumvarp og þar sem enginn formlegur meirihluti er á Alþingi er aldrei að vita hvað kemur út úr því.

Heimir Már Pétursson fréttamaður ræddi við gesti Víglínunnar um ríkisfjármálin; útgjöldin og tekjurnar sem og nýsamþykkta fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, ásamt það sem hæst ber í pólitískri umræðu dagsins.

Bæði Bjarni og Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hafa ámálgað myndun þjóðstjórnar og að kosið verði á nýjan leik innan ekki langs tíma. En ekki er víst að forseti Íslands fallist á það svo stuttu eftir kosningar og enn eiga formenn fjögurra flokka eftir að reyna með sér stjórnarmyndun ef Pírötum tekst ekki að leiða saman fimm flokka ríkisstjórn um helgina.

Víglínan er í opinni dagskrá og í beinni útsendingu kl. 12:20 á Stöð 2 og Vísi. Sjá má þáttinn í heild sinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×