Viðskipti erlent

Átök í Mið-Austurlöndum hafa þurrkað út hagvöxt heillar kynslóðar

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Átök í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku hafa þurrkað út hagvöxt heillar kynslóðar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að alþjóðasamfélagið þurfi að vera reiðubúið fyrir umfangsmikla þróunaraðstoð á svæðinu varðandi uppbyggingu stofnana og innviða.

Skemmdir á byggingum og innviðum í Sýrlandi eru metnar metin á 137,8 milljarða dala, sem samsvarar um 16 billjónum króna, eða 16 þúsund milljörðum.

Í nýrri skýrslu IMF segir að nauðsynlegt sé að auka aðstoð þessara ríkja til að koma í veg fyrir frekari átök í framtíðinni.

Mikil átök í Íra, Sýrlandi, Afganistan og Jemen hafa valdið fjárhagskreppum og gert mikið atvinnuleysi og fátækt verri. Einnig hafa átökin haft afleiðingar í nágrannaríkjum þar sem flóttamenn hafa flúið í milljónavís.

Til dæmis sé landsframleiðsla Sýrlands nú minni en helmingurinn af því sem hún var árið 2010. Ári áður en borgarastyrjöldin þar hófst. Á sama tíma flóttamenn fá Sýrlandi og Írak aukið íbúafjölda Líbanon um fjórðung og Jórdaníu um tíu prósent.

Það hefur valdið miklum vandamálum í efnahagi landanna.

Í Jemen hefur landsframleiðsla dregist saman um 25 til 35 prósent á einungis einu ári. Árið 2014 dróst framleiðsla Líbíu saman um 24 prósent.

Reuters bendir á að samkvæmt IMF hefur tiltölulega lítill fjöldi flóttamanna haft lítil neikvæð áhrif og jafnvel jákvæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×