Íslenski boltinn

Atli Viðar: Umgjörðin á pari við stærstu klúbbana í Skandinavíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
„Það er ekki síst liðsfélögum mínum í FH að þakka að ég náði að brjóta hundrað marka múrinn," segir FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson, en Atli skoraði sitt hundraðasta mark fyrir FH gegn ÍA á miðvikudag.

Atli gekk til liðs við FH árið 2001 og það var Logi Ólafsson sem krækti í þennan mikla markahrók.

„Ég var að spila með Dalvík og spilaði meðal annars sumarið 2000 á móti FH. Það gekk vel og svo um haustið þegar ég ákvað að skipta um umhverfi þá hafði Logi mikinn áhuga og fékk mig til að koma," sagði Atli Viðar Björnsson í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Atli skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild árið 2001 gegn KR. Atli þakkar liðsfélögum sínum fyrst og síðast að hafa náð mörkunum hundrað.

„Ég hef búið að því að vera í frábærum liðum frá fyrsta degi og margir mjög góðir leikmenn sem hafa verið að spila hérna og þjónustað mig."

„Ég fer inn á völlinn til þess að reyna gera mitt besta og hjálpa FH-liðinu í að ná úrslitum. Það finnst mér alltaf skipta mestu máli og er alveg heiðarlegur með það. Hvort að ég geri mark eða einhver annar, það breytir mig engu."," en hverjir eru bestu leikmenn sem Atli hefur spilað með í FH þessi fjórtán ár.

„Mér fannst frábært þegar ég kom hérna fyrst að fá að spila og æfa með Sigga Jóns (innsk. blaðamanns Sigurði Jónssyni) en hann var hérna fyrsta árið."

„Síðan finnst mér eftirminnilegt að hafa spilað með tvíburunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum. Allan Borgvardt var einstakur leikmaður og svo eru þessir síðustu ár eins og Atli Guðnason og Ólafur Páll og fleiri."

„Umgjörðin hérna er algjörlega frábær og held ég alveg á pari við stærstu klúbbana í Skandinavíu. Þetta hefur tekið ótrúlegum framförum á síðustu árum," sagði Atli að lokum.

Alla frétt Guðjóns Guðmundssonar má sjá í heild sinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×