Íslenski boltinn

Atli Viðar: Sáttur við þessa lausn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Arnþór
Atli Viðar Björnsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH eins og fram hefur komið og hefur þar með sitt fjórtánda tímabil hjá Hafnarfjarðarfélaginu. Hann gerði tveggja ára samning sem er með uppsagnarákvæði eftir eitt ár.

„Ég gaf mér tíma til að hugsa málið - vega og meta framhaldið,“ sagði Atli Viðar en gamli samningurinn rann út eftir tímabilið og sagði hann þá að hann væri alvarlega að íhuga að yfirgefa FH.

„Nokkur félög hringdu,“ sagði hann um áhuga annarra liða en vildi ekkert segja nánar um hversu langt viðræður þau fóru. „FH-ingar létu strax vita af sínum áhuga en ég ákvað að taka mér smá frí eftir tímabilið. Ég hef því ekki legið undir feldi í tvo mánuði og hugsað stanslaust um fótbolta.“

„Síðustu daga höfum við spjallað saman og fundið lausn sem ég er sáttur við,“ sagði Atli Viðar sem fékk þó minna að spila í sumar en oft áður.

„Auðvitað vill maður spila eins og ég hef áður sagt og þetta hafði sitt að segja í öllu þessu ferli. En þegar ég var búinn að setjast niður og hugsa málið til enda þá tel ég að þessi ákvörðun sé rétt. Ég stend og fell með henni.“

Það eru rúm fjórtán ár liðin síðan hann samdi fyrst við FH og hefur hann verið samningsbundinn félaginu allan þann tíma. Hann var reyndar lánaður til Fjölnis og lék með félaginu í eitt tímabil þegar hann var að koma til baka eftir erfið meiðsli.

„Þessi tími hefur liðið fáránlega hratt og breytingin sem hefur orðið á þeim tíma, til dæmis á FH sem knattspyrnufélagi, er ótrúleg. Ég hef átt frábæran tíma í þessu félagi.“

Hann viðurkennir fúslega að hann hafi ekki leitt hugann að því að hann yrði svo lengi hjá FH þegar hann gekk til liðs við félagið í október árið 2000. „Þá var ég bara tvítugur gutti utan að landi og var ekkert að spá í slíku löguðu.“


Tengdar fréttir

Atli Viðar áfram hjá FH

Skrifaði undir nýjan samning við Hafnfirðinga en þar hefur hann verið í fjórtán ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×