Handbolti

Atli Ævar markahæstur á vellinum í sigri Guif

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atil Ævar.
Atil Ævar. Vísir/Aðsend
Atli Ævar Ingólfsson var markahæstur í sigri Eskilstuna Guif á IK Savehöf í sænska handboltanum í dag.

Guif var fimm mörkum yfir í hálfleik 15-10 og þeir héldu þeim mun út allan leikinn. Lokatölur 26-21 sigur Guif.

Atli Ævar skoraði átta mörk og Aron Rafn Eðvarðsson stóð vaktina í markinu. Kristján Andrésson þjálfar lið Guif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×