Handbolti

Atli Ævar frábær í sigri í Íslendingaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Fésbókarsíða Eskilstuna Guif
Atli Ævar Ingólfsson átti flottan leik með Eskilstuna Guif í kvöld í tveggja marka heimasigri á Ricoh, 31-29, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Guif lenti sex mörkum undir í byrjun seinni hálfleiks en leikmenn liðsins komu sterkir til baka og unnu síðustu 27 mínútur leiksins með átta mörkum, 17-9.

Atli Ævar var markahæstur í liði Eskilstuna Guif með tíu mörk úr aðeins tólf skotum en hann skoraði fimm af mörkum sínum af vítalínunni. Tandri Már Konráðsson skoraði 4 mörk og gaf átta stoðsendingar fyrir Ricoh.

Þetta var mikilvægur sigur fyrir lærisveina Kristjáns Andréssonar í Eskilstuna Guif en liðið var fyrir leikinn búið að tapa þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Ricoh hefur verið á góðu skriði og átti möguleika að komast í hóp átta bestu liða deildarinnar með sigri.

Tandri Már kom Ricoh fjórum mörkum yfir, 17-13, með því að skora tvö mörk í röð undir lok hálfleiksins en Atli Ævar skoraði lokamarkið í fyrri hálfleik og minnkaði muninn í 17-14.  Tandri Már skoraði 3 mörk og gaf 5 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum en Atli Ævar nýtti 4 af 5 skotum sínum í hálfleiknum.

Ricoh komst mest sex mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiksins, 20-14, en Guif-liðið kom til baka og Atli Ævar jafnaði metin í 24-24 rúmum fimmtán mínútum fyrir leikslok. Atli Ævar kom Guif líka í fyrsta sinn tveimur mörkum yfir, 27-25, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×