Fótbolti

Atletico vann nágrannaslagin gegn Real

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Vísir/getty
Atletico Madrid gerði sér lítið fyrir og skellti Real Madrid 2-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Tiago kom Atletico yfir á 10. mínútu en Cristiano Ronaldo jafnaði metin úr vítapspyrnu sem hann fékk sjálfur á 26. mínútu. Staðan í hálfleik var 1-1 þrátt fyrir stórsókn heimamanna það sem eftir lifði hálfleiksins.

Tyrkinn Arda Turan tryggði Atletico sigurinn með marki eftir sendingu frá Juanfran fjórtán mínútum fyrir leikslok.

Annað tap Real Madrid í deildinni í röð þar með staðreynd en liðið hefur aðeins unnið einn af þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni.

Atletico er komið í annað sæti deildarinnar með 7 stig en Barcelona er eitt liða með fullt hús stiga í þremur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×