Fótbolti

Atletico Madrid í úrslit Meistaradeildarinnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Atletico Madrid er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Bayern í kvöld í stórkostlegum leik.

Fyrri leikur liðanna fór 1-0 í Madrid og Atletico fer því í úrslit á útivallarmarkinu. Andstæðingur Atletico í úrslitaleiknum verður annað hvort Real Madrid eða Man. City.

Það tók Bayern 30 mínútur að brjóta Atletico niður. Þá skoraði Xabi Alonso beint úr aukaspyrnu.

Lukkan var reyndar með honum í liði því boltinn fór af Jose Maria Gimenez og breytti því um stefnu.

Aðeins fjórum mínútum síðar var Gimenez aftur í eldlínunni er hann braut á Javi Martinez og víti dæmt. Thomas Müller tók vítið en Jan Oblak varði frá honum.

Það voru aðeins nokkrar mínútur liðnar af síðari hálfleik er Antoine Griezmann slapp í gegnum vörn Bayern eftir laglega sendingu frá Fernando Torres. Hann lagði boltann smekklega í netið. Hann virkaði þó ansi nærri því að vera rangstæður.

1-1 og það þýddi að Bayern yrði að skora tvö mörk í viðbót til þess að komast í úrslitaleikinn.

Bæjarar gáfust ekki upp og rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok náði Robert Lewandowski að skalla boltann í netið og setja allt í háaloft.

Átta mínútum fyrir leikslok var brotið á Fernando Torres og vítaspyrna dæmd. Glórulaus dómur þar sem brotið var klárlega utan vítateigs. Réttlætinu var síðan fullnægt er Manuel Neuer varði vítaspyrnu Torres. Bayern sótti grimmt undir lokin en náði ekki að skora.

Fyrsta mark leiksins má sjá hér að ofan en hin mörkin hér að neðan.

Griezmann jafnar. Lewandowski kemur Bayern í 2-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×