Fótbolti

Atlético Madrid heldur sínum markahæsta manni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Griezmann fagnar einu fjölmargra marka sinna á síðasta tímabili.
Griezmann fagnar einu fjölmargra marka sinna á síðasta tímabili. vísir/epa
Antonie Griezmann ætlar að halda kyrru fyrir hjá Atlético Madrid en Frakkinn hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Griezmann, sem er 25 ára, spilaði frábærlega fyrir Atlético Madrid í vetur og skoraði 32 mörk í 54 leikjum. Liðið endaði í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og tapaði fyrir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Atlético Madrid keypti Griezmann af Real Sociedad á 22,5 milljónir punda fyrir tveimur árum og Frakkinn hefur síðan þá skorað 57 mörk í 107 leikjum fyrir Madrídar-liðið.

Griezmann er einnig fastamaður í franska landsliðinu sem mætir því írska í 16-liða úrslitum á EM 2016 í Lyon á sunnudaginn.

Griezmann hefur skorað eitt mark á EM til þessa; fyrra mark Frakka í 2-0 sigri á Albaníu í riðlakeppninni.


Tengdar fréttir

Gaitán valdi Atlético Madrid

Atlético Madrid hefur náð samkomulagi við Benfica um kaup á Argentínumanninum Nicolás Gaitán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×