Innlent

Átján stig á Suðurlandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gamla gula er víða sjáanleg þennan morguninn.
Gamla gula er víða sjáanleg þennan morguninn. Veðurstofan
Það má gera ráð fyrir allt að 18 stiga hita á landinu í dag ef marka má spákort Veðurstofunnar. Þau áætla að heitast verði á Suðurlandi í dag en á Norðausturlandi á morgun.

Að sama skapi verður fremur hæg norðlæg átt í dag og léttskýjað um vestanvert landið en skýjað og stöku skúrir austantil. Sólskinið staldrar hins vegar ekki lengi við hjá höfuðborgarbúum þar sem á morgun snýst í suðlæga átt. Þá mun þykkna upp með deginum og fer að rigna annað kvöld, en léttskýjað verður þá um landið norðanvert.

Svo snýst aftur í norðlæga átt á fimmtdag og rofar til sunnanlands en gera má ráð fyrir stöku skúrum fyrir norðan. Hitinn verður á svipuðu róli alla vikuna, frá 7 stigum og allt upp í 18 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart, en þykknar upp sunnan- og vestanlands og fer að rigna um kvöldið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðausturlandi.

Á fimmtudag:

Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, bjart með köflum en stöku skúrir norðaustantil síðdegis. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á föstudag:

Suðvestan 5-13 og rigning, en þurrt um landið norðaustanvert fram eftir degi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.

Á laugardag:

Vestlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir en léttir til á Suðausturlandi. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast suðaustantil.

Á sunnudag:

Suðvestan eða breytileg átt og víða dálítil væta. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast austanlands.

Á mánudag:

Austlæg eða breytilegri átt og víða dálítil rigning eða skúrir. Hiti 7 til 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×