Lífið

Átján ljósmyndarar mynduðu Icebody

Ellý Ármanns skrifar
Icebody ferðaðist um landið og sat fyrir dagana 13. - 18. april ásamt bresku föruneyti.
Icebody ferðaðist um landið og sat fyrir dagana 13. - 18. april ásamt bresku föruneyti. Myndir/einkasafn Icebody
Hulda Lind Kristinsdóttir, betur þekkt sem Icebody, er nýkomin heim úr sex daga ferðalagi um suðurlandið þar sem hún sat fyrir í nístings kulda. Hvorki meira né minna en átján ljósmyndarar mynduðu Huldu sem var valin úr hópi íslenskra kvenna til að sitja fyrir ásamt þremur breskum fyrirsætum. Við spurðum Icebody út í verkefnið og fengum að fletta í gegnum símamyndirnar hennar úr ferðalaginu.

„Þetta var  „photo workshop“ sem stóð yfir í sex daga með hjónunum Natalie sem er „fine art fashion ljósmyndari“ og Matt. Þau komu til Íslands í verkefnið en þau starfa undir nafninu Miss Aniela eða réttara sagt hún. Þau eru bæði breskir ljósmyndarar og nokkuð þekkt í bransanum,“ útskýrir Hulda á meðan hún sýnir okkur myndirnar sem teknar voru á ferðalaginu. 

„Þarna er ég með módelunum og fatahönnuðurinn og stillistinn er þarna i miðjunni. Þær eru allar breskar.“
„Þetta eru allt „behind the scenes“ myndir. Það er ekki búið að vinna neinar myndir ennþá. Það var allt lagt í þetta verkefni og það gekk rosa vel. Ég fékk mikið af hrósum svo „I did my thing“. Ég er hæstánægð. Fatahönnuður og stíllisti sá um að dressa okkur alla daga og alltaf nýr kjóll á hverjum degi og ný förðun og ný hárgreiðsla. Rosa flott allt.“

Hér má sjá förðun Huldu einn daginn.
„Þau komu með 18 ljósmyndara hingað til Íslands. Það voru ljósmyndarar alls staðar að úr heiminum sem eru áhugaljósmyndarar eða eru að vinna í ljósmyndun.  Miss Aniela kom með fatahönnuð og stillista og þrjár fyrirsætur frá Englandi og völdu siðan eina íslenska fyrirsætu og ég varð fyrir valinu.“

„Við mynduðum hjá Geysi, á Vík og hjá Jökulsárlóni. Svona verkefni eru aðallega gerð fyrir „portfolio“ hjá bæði hjá ljósmyndurunum og okkur módelunum. Ljósmyndararnir voru að æfa sig í að mynda og að nota ljósabúnað og annað og Miss Aniela aðstoðaði og tók myndir lika,“ segir Icebody að lokum.

„Þarna var haldið á mér inní bíl. Þarna var mikið um rokið og kuldann og hvert módel var bara nokkrar mínutur úti og siðan aftur inn í bíl.“
Hér má sjá magnaðar myndir úr tökunum af fyrirsætunum í stórbrotnu landslagi Íslands.


Tengdar fréttir

Icebody olli usla í atriði Frikka Dórs

"Fólk virðist vera á báðum áttum með þetta uppátæki okkar, sumir fá illt í sálina og öðrum finnst þetta vera fyndið,“ segir Friðrik Dór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×