Athyglinni beint að utangarðsmönnum Bergsteinn Sigurðsson skrifar 25. maí 2013 15:30 Ólafur J. Engilbertsson sýningarstjóri, ásamt Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur og Halldóru Kristinsdóttur, sem semja texta sýningarinnar. fréttablaðið/Anton
Sýningin Utangarðs? verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Á henni verður brugðið ljósi á það hvernig var að vera niðursetningur, fatlaður, geðveikur, glæpamaður, drykkjumaður eða listamaður á seinni hluta átjándu aldar og fram á 20. öld. Ólafur J. Engilbertsson er sýningarstjóri en Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Halldóra Kristinsdóttir eru höfundar texta. „Hugmyndin kom upphaflega frá Sigríði Hjördísi, sem hafði rannsakað skjöl um glæpamenn á 19. öld,“ segir Ólafur. „Hún einbeitti sér í fyrstu að Svani Jónssyni, ungum manni með listræna hæfileika sem ólst upp við slæm skilyrði og lenti upp á kant við samfélagið. Svanur var dæmdur fyrir smáglæpi, þjófnaði á harðfiski og öðru smálegu, og endaði ævi sína í betrunarhúsi í Kaupmannahöfn.“ Saga Svans varð þannig kveikjan að sýningunni og til er mikið af efni um fólk sem var utanveltu og utangarðs í handritadeild Landsbókasafnsins. „Sumir eru auðvitað þekktir, eins og Sölvi Helgason, en við vildum draga fram sögur af öðru fólki sem lítið hefur verið fjallað um fram að þessu. Margir voru listamenn; skáld, tónlistarmenn og leikarar og nokkrir voru vatnsberar – á meðan sú starfsgrein var enn við lýði. Enn aðrir höfðu tekjur af einhverri sérgáfu líkt, eins og Gvendur dúllari sem „dúllaði“ eða sönglaði, og aðrir voru með leikrænar uppákomur.“ Einnig verður fjallað um sérkenni utangarðsfólks og hvaða atvinnu það stundaði helst. „Örar þjóðfélagsbreytingar fólu í sér breytta stöðu þeirra sem lentu utangarðs við kjarnafjölskylduna og samfélagið eða nutu ekki þeirrar aðhlynningar sem völ er á í dag,“ segir Ólafur. 2 „Lög og reglugerðir um flakk og ómagaframfærslu breyttust, vistarbandið var afnumið og ýmis störf lögðust af. Sæmundur með sextán skó var til dæmis vatnsberi en það starf lagðist af í kringum aldamótin 1900. Með því að segja sögu þessara einstaklinga viljum við bregða ljósi á samfélagsgerðina og hvernig hún var að breytast. Á tímabili fór ómögum fjölgandi en svo fækkaði þeim aftur.“ Ólafur segir að það hafi verið snúið að miðla efninu í sýningu. „Að hluta til er þetta „ósýnilegt“ málefni. Við reynum að draga fram þær heimildir sem til eru um þetta fólk á handritadeildinni. Við fengum líka Halldór Baldursson til að teikna myndir af mörgum af þeim einstaklingum sem eru til umfjöllunar og það glæðir hana lífi, auk þess sem til eru ljósmyndir af sumum þessara einstaklinga.“ Sýningin Utangarðs stendur til 30. september. 3
Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira