Innlent

Athugun lýkur ekki í vikunni

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Umboðsmaður Alþingis segir viðbótarvinnu ólokið.
Umboðsmaður Alþingis segir viðbótarvinnu ólokið. vísir/gva
Niðurstaða athugunar umboðsmanns Alþingis á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og Stefáns Eiríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, verður ekki birt í þessari viku eins og umboðsmaður hafði áður sagst vonast til að yrði reyndin.

„Þeirri vinnu sem þurfti að vinna til viðbótar er ekki lokið en þess er áfram vænst að þessu verði lokið sem allra fyrst,“ segir Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×