Viðskipti erlent

AT&T prufar 5G farsímanet

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
5G farsímanet er væntanlegt.
5G farsímanet er væntanlegt. vísir/afp
Samskiptafyrirtækið AT&T tilkynnti í gær að fyrirtækið ætlaði að prófa næstu kynslóð farsímanets, oftast kölluð 5G, í Austin í Texas-ríki á árinu. Verður tæknin notuð til þess að knýja þjónustuna DirecTV Now á heimilum borgarinnar. Fréttastofa CNN greindi frá því að búist væri við því að prufurnar færu fram á fyrri hluta þessa árs. Er þeim ætlað að kanna hversu vel 5Gfarsímaneti tekst að meðhöndla mikla umferð.

AT&T hélt því fram í fréttatilkynningu að 5G netið sem fyrirtækið væri að þróa næði allt að fjórtán gígabita hraða á sekúndu, sem er mun meiri hraði en fæst með 4G tengingu. Þessi aukni hraði myndi gera neytendum kleift að horfa á myndbönd í mun betri upplausn án þess að þurfa að bíða eftir því að þau hlaðist inn. Tilkoma 5G farsímanets mun væntanlega koma til með að breyta netnotkun snjallsímaeigenda. Aukið geymslupláss og aukinn hraði opna leiðir fyrir hærri upplausn myndbanda og stærri snjallsímaforrit. Mun því þróunin sem hófst með 4G tengingu halda áfram.

Annar samskiptarisi, Verizon, býst einnig við því að hefja prufur á 5G neti á árinu og þá er Google með sams konar áætlanir. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×