Enski boltinn

Aston Villa sótti sigur á Anfield

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aston Villa kemst yfir
Aston Villa kemst yfir Vísir/getty
Aston Villa lyfti sér upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið lagði Liverpool 1-0 á útivelli í kvöld.

Gabriel Agbonlahor skoraði eina mark leiksins á níundu mínútu en lið Liverpool var bitlaust í leiknum og skapaði sér fá færi þó liðið hafi átt eitt skot í stöng í leiknum.

Phillippe Senderos fékk frábær færi í fyrri hálfleik til að tvöfalda forystu Aston Villa en hitti ekki markið. Það kom þó ekki að sök því Aston Villa varðist mjög vel og hélt hreinu í þriðja sinn í fjórum leikjum.

Aston Villa hefur aðeins skorað fjögur mörk í leikjunum fjórum en það dugar liðinu í tíu stig. Aðeins Chelsea hefur náði í fleiri stig í upphafi leiktíðar.

Liverpool er með sex stig í leikjunum fjórum og er rétt fyrir ofan miðja deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×