Enski boltinn

Aston Villa leggur fram tilboð í Cleverley

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Tom Cleverley í leik Manchester United og Sunderland um síðustu helgi.
Tom Cleverley í leik Manchester United og Sunderland um síðustu helgi. Vísir/Getty
Aston Villa lagði í dag fram tilboð upp á 8 milljónir punda í Tom Cleverley, enska miðjumann Manchester United samkvæmt heimildum Daily Telegraph.

Samkvæmt heimildum Telegraph hefur Louis Van Gaal tilkynnt Cleverley að hann eigi sér ekki framtíð hjá félaginu og að Manchester United sé að leitast eftir tilboðum í hann.

Talið er að Everton og Hull City fylgist áhugasöm með málefnum Cleverley en Aston Villa var fyrsta liðið til þess að leggja fram tilboð í miðjumanninn.

Cleverley sem er 25 árs gamall hefur leikið 78 leiki fyrir Manchester United í öllum keppnum ásamt því að hafa leikið 13 landsleiki fyrir Englands hönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×