Enski boltinn

Aston Villa að bjóða metfé í Abel Hernandez

Stefán Árni Pálsson skrifar
Abel Hernandez í leik með Hull
Abel Hernandez í leik með Hull vísir/getty
Forráðamenn Aston Villa hafa boðið tuttugu milljónir punda í framherjann Abel Hernandez sem leikur í dag með Hull.

Aston Villa er í ensku Championship deildinni sem er næst efsta deildin á Englandi. Taki Hull tilboðinu verður leikmaðurinn sá dýrasti í sögu Championship-deildarinnar.

Þessi 26 ára Úrúgvæi kom til Hull fyrir tveimur tímabilum frá Palermo á Ítalíu. Síðan þá hefur hann skorað 25 mörk í 67 leikjum.

Aston Villa hefur nú þegar samið við sex leikmenn í sumar og ætlar liðið sér greinilega beint aftur upp í ensku úrvalsdeildinni en liðið féll úr deildinni á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×