Lífið

Ástin blómstraði 2014: Pör ársins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það er fátt fallegra en að verða vitni að því þegar ástin blómstrar milli tveggja einstaklinga.

Á árinu sem er að líða kviknaði ástin svo sannarlega milli þekktra Íslendinga og lifir enn.

Lífið á Vísi kíkti á nokkur stjörnupör sem urðu til á árinu.

Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir

Það kom mörgum í opna skjöldu þegar tónlistarmaðurinn og leikkonan opinberuðu ást sína á Facebook í lok október. Það er klárlega hjónasvipur með þessum tveimur og ekki skortir hæfileikana í þetta samband.

Snorri Snorrason og Heiða Ólafsdóttir

Á fyrstu mánuðum ársins fréttist af nýju ástarsambandi. Sannkölluðu Idol-sambandi. Þau Snorri og Heiða felldu saman hugi en þau eru bæði kennd við hæfileikakeppnina Idol Stjörnuleit. Snorri sigraði í keppninni árið 2006 en Heiða lenti í öðru sæti árið 2005.

Marín Manda Magnúsdóttir og Arnar Gunnlaugsson

Blaðakonan knáa söðlaði um og flutti til Danmerkur um mitt árið. Hún lét ekki þar við sitja og nældi sér einnig í nýjan mann og blómstrar ástin sem aldrei fyrr í Danaveldi.

Ingimundur Björgvinsson og Marta María

Sjálf Smartlandsdrottningin fetaði í fótspor stjarnanna og byrjaði með einkaþjálfaranum sínum um mitt árið. Þau eru yfir sig ástfangin og geislar af þeim hvert sem þau fara. Ofurpar hefur sjaldan átt jafn vel við og nú.

Elmar Gilbertsson og Selma Björnsdóttir

Söngfuglarnir tveir opinberuðu ástarsamband sitt síðla sumars og gáfu vinir þeirra þeim fljótt viðurnefnið Selmar. Eitt er víst - þau geta svo sannarlega sungið ástarljóð til hvors annars.

Unnsteinn Manuel og Ágústa Sveinsdóttir

Retro Stefson-bróðirinn féll fyrir ljóshærða vöruhönnuðinum og er þar á ferð einstaklega smart par sem allir taka eftir.

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Logi Pedro

Hinn Retro Stefson-bróðirinn fann líka ástina á árinu og það í örmum Reykjavíkurdóttur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×