Lífið

Ástin blómstar í fjölmiðlaheiminum

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður DV, er genginn út. Sú heppna heitir Kolfinna Von Arnardóttir og er almannatengill. Hún rekur sitt eigið fyrirtæki, Artikolo, ásamt því að sjá um lífsstíls- og hönnunarsíðu í DV, en hún lærði á Ítalíu.

Þau skráðu sig í samband á samfélagsmiðlinum Facebook á sunnudag. Miðað við athugasemdir við sambandsskráninguna má ætla að Kristín Tómasdóttir hafi haft eitthvað með kynni þeirra að gera, en hún er þekktust fyrir sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglingsstúlkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×