Fótbolti

Ástin bjargaði Aroni í gegnum meiðslin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Jóhannsson er kominn aftur á fullt.
Aron Jóhannsson er kominn aftur á fullt. vísir/getty
Aron Jóhannsson, Íslendingurinn í bandaríska knattspyrnulandsliðinu, er kominn aftur á fullt eftir erfið meiðsli sem eyðilögðu meira og minna fyrir honum heimsmeistaramótið í sumar.

Aron kom inn á í fyrsta leik Bandaríkjanna gegn Gana í sumar en spilaði svo ekki mínútu til viðbótar vegna meiðsla, en hann er nú kominn á fætur og búinn að skora tvö mörk í sex leikjum fyrir AZ í Hollandi.

Þessi öflugi framherji var á miklum skriði fyrir HM og lauk síðasta tímabili með AZ með stæl. Hann skoraði 26 mörk í 51 leik og var valinn í HM-hóp Bandaríkjanna þar sem hann sem fyrr segir spilaði ekki mikið. „Síðustu sex mánuðir voru erfiðasti tími lífs míns,“ segir Aron í ítarlegu viðtali við Vice Sports.

Blaðamaður Vice Sports hitti Aron á kaffihúsi á Schiphol-flugvellinum í Hollandi og segir hann vera stærri en síðast þegar þeir hittust. Grafarvogsbúinn hafi greinilega tekið hressilega á því í ræktinni undanfarna mánuði.

Aron Jóhannsson á HM.vísir/getty
Hann segir Aron ekki mættan til Amsterdam til að versla. Hann var að skutla vinum og ættingum á flugvöllinn og að bíða eftir kærustunni sinni, Bryndísi Stefánsdóttur. Hann segir ástina í sínu lífi hafa haldið honum heilum á geði á meðan hann gekk í gegnum meiðslin.

„Ég vorkenni henni svolítið. Ég fór stundum út á völl þar sem ég átti að æfa með liðinu en ég gat það ekki út af ökklanum. Þá varð ég enn meira pirraður og hún þarf að lifa með pirringnum í mér. En hún hjápaði mér,“ segir Aron.

Aron lýsir því í viðtalinu þegar hann kom inn á í byrjun leiks gegn Gana, en hann var ekki í byrjunarliðinu. Jozy Altidore, framherji Sunderland, tognaði aftan í læri snemma leiks og þá þurfti Aron að gera sig kláran.

„Það besta við HM var auðvitað að koma inn á. Um leið og Altidore meiddist fóru ég og Wondo (Chris Wondolowski) að hita upp. Við vissum ekki hvað var í gangi,“ segir Aron.

„Ég myndi ekki segja að ég hafi verið stressaður, ég var meira spenntur. Þetta voru mínar fyrstu mínútur á HM. Nafn mitt var kallað þegar ég var að gera mig kláran og ég hugsaði: „Hættu nú, ég er að fara að spila á HM.“ En þegar ég var kominn út á völlinn gaf ég mig allan í leikinn.“

Aron ræðir margt fleira í viðtalinu; æfingabúðirnar fyrir HM, stöðu Landons Donavans í sumar, lífið í Hollandi og landsliðsþjálfarann Jürgen Klinsmann. Allt viðtalið á ensku má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×