Innlent

Ástandið í Leifsstöð: Farþegum snúið við í landgangi

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Átján áætlunarflugum hefur verið seinkað.
Átján áætlunarflugum hefur verið seinkað. Mynd/Pjetur
Átján áætlunarflugum hefur verið seinkað vegna rýmingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í dag. 

Sjá einnig: Uppnám í Leifsstöð: Allir settir í Vopnaleit og von á töfum á flugi

Kristján Gunnar Valdimarsson er staddur í Leifsstöð en hann var við það stíga um borð í vél Easy Jet til Genfar. Áætluð brottför var klukkan 16:50 en nú hefur fluginu verið seinkað til klukkan 19:00. 

„Allir farþegar eru núna á fyrstu hæðinni, þar sem innritunin fer fram. Hér bíður fólk í röð frá stiganum og niður, það er löng röð út eftir öllu,“ segir Kristján en að hans sögn virðist engin hreyfing virðist vera á röðinni. 

Ástæðan fyrir rýmingunni var sú að um þrjúleytið í dag lenti flugvél í Keflavík sem var að koma frá Nuuk í Grænlandi en farþegar vélarinnar fóru ekki í gegnum vopnaleit sem samræmist alþjóðlegum stöðlum. 

Til stóð að gera vopnaleit á þessum farþegum áður en þeir kæmu inn í flugstöðina en mistök urðu til þess að það var ekki gert. Því þurfti að rýma alla efri hæðina.

Allir farþegar sem  staddir voru á efri hæð þurftu að yfirgefa hæðina, einnig tengifarþegar. Þá var farþegum sem voru staddir í landgangi, og þar með rétt ókomnir inn í vél, einnig gert að snúa við og fara á neðri hæð hússins.

Ekkert tilkynnt um ástæður rýmingarinnar

Að sögn Kristjáns var mannskapnum smalað burt í snarhasti af starfsfólki sem gat ekki gefið upp ástæðurnar að baki rýmingunni eða svarað spurningum farþega. 

Hann fullyrðir að ekki hafi heyrst nein tilkynning í  hátalarakerfinu um ástæður aðgerðanna. 

Kristján bendir jafnframt á að margir hafi eflaust keypt áfengi í Fríhöfninni á efri hæð flugstöðvarinnar og því líkur á að slíkt góss verði tekið af fólki þegar það fer aftur í gegnum öryggisleit vegna gildandi vökvatakmarkana.  

Mikill háannatími er í flugstöðinni á þessum tíma dags en um tvö til þrjú þúsund manns voru í flugstöðinni. 

Uppfært kl. 18:50



Áfengi sem farþegar keyptu í Fríhöfninni áður en efri hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var rýmd fyrr í dag mun ekki vera tekið af þeim. Þetta staðfesti Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

 „Farþegarnir fá ekki að fara með áfengið aftur í gegnum vopnaleitina en allir sem keyptu eitthvað fá kvittun sem þeir geta framvísað í Fríhöfninni og fengið það sama og þeir keyptu.“

Að sögn Guðna gengur ágætlega að koma farþegunum, sem eru um þrjú þúsund talsins, í gegnum öryggisleit. Stefnt er að því að allir verði komnir í gegn klukkan 19:00.

Hlið hafa verið opnuð á ný og farþegar farnir að fjölmenna í vélarnar.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×