Innlent

Ásta Guðrún biðst afsökunar: „Ég skil vel hvernig þessi ummæli þóttu óviðeigandi og jafnvel særandi“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata.
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata. Vísir/Ernir
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum í Silfrinu á sunnudag þar sem hún sagðist ekki sjá fram á að geta keypt sér íbúð. Ummæli Ástu Guðrúnar vöktu mikla athygli sökum þess að laun hennar eru hærri en laun ungs fólks á Íslandi almennt.

„Ég er ekkert að fara að sjá fram á að geta keypt íbúð einhvern tímann á næstunni. Það er frekar ómögulegt að mínu mati,“ sagði Ásta.

Miklar umræður spruttu upp í kjölfar þessara ummæla á samskiptamiðlinum Twitter þar sem Dagur Hjartarson, rithöfundur, velti því fyrir sér hvernig á því stæði að þingmaður með 1,5 milljónir króna í laun á mánuði gæti ekki keypt sér íbúð. Ásta svaraði Degi og benti á að hún hefði um síðustu mánaðarmót einungis hafa fengið 800 þúsund krónur útborgaðar.

„Ég biðst afsökunar á þeim orðum sem ég lét falla í Silfrinu síðastliðinn sunnudag. Þetta var sagt í hugsunarleysi og það var aldrei ætlun mín á nokkurn hátt að setja mínar fjárhagslegu aðstæður að jöfnu við aðstæður annars ungs fólks á Íslandi,“ skrifar Ásta Guðrún á Facebook síðu sinni.

„Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að aðstæður mínar eru ekki sambærilegar við aðstæður fólks almennt á Íslandi og ég skil vel hvernig þessi ummæli þóttu óviðeigandi og jafnvel særandi.“

Hún segist hafa viljað koma því á framfæri að hækkanir á húsnæði hafi verið langt fram úr því sem hún hafi búist við og vildi beina kastljósinu á stöðu ungs fólks, sem jafnvel sé nýkomið úr námi og inn á vinnumarkað og hvernig það eigi að feta sig við þessar aðstæður. 

„Aðstæður sem ég upplifði fyrir ekki svo löngu síðan og tengi ennþá mikið við. Eitt af erindum mínum í stjórnmálum er að berjast fyrir bættum hag ungs fólks á Íslandi og ég vona að ég geti unnið til baka traust þessa hóps og haldið áfram að vinna að þeirra stóru hagsmunamálum. Ég læri af mistökum og geri betur næst. Því get ég lofað.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×