Erlent

Assange ætlar að yfirgefa sendiráðið

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Fjölmiðlafólk safnaðist saman fyrir utan sendiráð Ekvadors í gær og beið átekta.
Fjölmiðlafólk safnaðist saman fyrir utan sendiráð Ekvadors í gær og beið átekta. Nordicphotos/AFP
Breska útvarpið BBC fullyrti í gær að úrskurðarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefði komist að þeirri niðurstöðu, að Julian Assange væri í raun haldið föngnum í sendiráði Ekvadors í London og það bryti í bága við alþjóðasamninga. Sænska utanríkisráðuneytið skýrði einnig frá þessu í gær.

Wikileaks segir að Assange muni þó bíða þess að fá formlega staðfestingu frá nefndinni sjálfri. Nefndin mun birta niðurstöðu sína í dag, en vildi í gær ekki gefa fjölmiðlum neina staðfestingu á þessum fréttum.

Assange hafði fyrr í gær lýst því yfir á Twitter-síðu sinni að hvernig sem niðurstaða nefndarinnar yrði þá myndi hann yfirgefa sendiráð Ekvadors í dag. Yrði niðurstaða nefndarinnar sér ekki í vil mundi hann gefa sig fram við lögreglu í Bretlandi, en yrði niðurstaðan jákvæð vænti hann þess að fá þegar í stað vegabréf sitt afhent og hætt yrði við allar tilraunir til að handtaka hann.

Úrskurðarnefndin nefnist Vinnuhópur um óréttmætar fangelsanir. Hún var stofnuð árið 1991 og hefur það hlutverk að rannsaka mál einstaklinga sem hafa verið sviptir frelsi og skera úr um hvort það sé gert með ólöglegum hætti.

Assange hefur haldið til í sendiráði Ekvadors í London frá júnímánuði árið 2012, eða í rúmlega þrjú og hálft ár. Stjórnvöld í Ekvador höfðu þá samþykkt að veita honum hæli.

Hann hefur átt það á hættu að lögreglan handtaki hann, hætti hann sér út fyrir hússins dyr. Sænsk stjórnvöld hafa óskað eftir framsali hans vegna ásakana um kynferðisbrot, sem þau vilja yfirheyra hann um.

Þá telur Assange sig eiga á hættu að hann verði framseldur til Bandaríkjanna, þar sem yfir honum vofa málaferli og fangelsi vegna uppljóstrana Wikileaks um framferði bandaríska hersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×