Erlent

Assad kennir hryðjuverkamönnum um fjöldamorðin

Bashar al-Assad.
Bashar al-Assad.
89 manns létu lífið í Sýrlandi í gær, þar af 57 stjórnarhermenn. Það er mesta mannfall sem stjórnarherinn hefur orðið fyrir á einum degi síðan uppreisnin hófst í mars í fyrra. Flestir létust í bardögum í þorpum og bæjum.

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, neitar því að stjórnarherinn tengist á nokkurn hátt fjöldamorðunum í Houla í vesturhluta landsins. Þar voru meira en 100 manns, þar á meðal fjöldi barna, myrtur á hrottalegan hátt fyrir helgi.

Forsetinn segir að þar hafi viðbjóðslegur glæpur verið framin sem jafnvel skrímsli myndu ekki vilja kannast við. Hann fullyrðir enn og aftur að glæpirnir í landinu, þar á meðal þessi, séu framdir af hryðjuverkamönnum sem studdir eru af erlendum ríkjum og er ætlað að skapa glundroða í Sýrlandi.

Meira en 13.400 manns hafa verið myrt í Sýrlandi síðan uppreisnin hófst.


Tengdar fréttir

Þóttist vera látinn til að blekkja morðingja

Sýrlenskur piltur greip til örþrifaráða þegar vígamenn myrtu fjölskyldu hans í bænum Houla í síðustu viku. Hann makaði blóði bróður síns á föt sín til að blekkja morðingjana.

Segja Rússa stuðla að borgarastríði

„Þeir eru að segja mér að þeir vilji ekki sjá borgarastríð. Ég hef verið að segja þeim að stefna þeirra muni hjálpa til við að stuðla að borgarastríði,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um afstöðu Rússa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Mannréttindaráð fundar í kjölfar fjöldamorða

Enn berast fregnir af fjöldamorðum í Sýrlandi. Andspyrnumenn þar í landi hafa birt myndband sem sýnir lík þrettán verkamanna en talið er að vígasveit hafi skotið þá til bana í útjaðri Qusair þorpsins í vesturhluta Sýrlands. Er þetta þriðja fjöldamorðið á einni viku í landinu.

Pillay fordæmir fjöldamorð í Sýrlandi

Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi á laugardaginn síðastliðinn gætu talist sem glæpur gegn mannkyni.

Rússar taka undir ásakanir

Báðir aðilar hafa greinilega átt hlut að dauða saklausra manna, þar á meðal nokkurra tuga kvenna og barna, segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, um fjöldamorðin í Houla í Sýrlandi á föstudag.

Rússar segja íhlutun í Sýrlandi ekki koma til greina

Rússar lýstu því yfir í morgun að hernaðaríhlutun alþjóðasamfélagsins í Sýrlandi komi ekki til greina og munu þeir því að öllum líkindum beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðann verði slík tillaga lögð fyrir. Áður hafði Francois Hollande forseti Frakklands sagt að slík íhlutun hljóti að koma til greina.

Fordæma fjöldamorð en deila um aðgerðir

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdu í gærkvöldi fjöldamorð ríkisstjórnarinnar í Sýrlandi í borginni Houla. Talið er að hundrað óbreyttir borgarar hafi verið myrtir af hermönnum stjórnarinnar í borginni á föstudaginn.

Fórnarlömbin í Houla voru flest tekin af lífi

Flestir hinna 108 sem fórust í Houla héraði í Sýrlandi á föstudaginn voru teknir af lífi. Þetta fullyrða eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa skoðað líkin. Vitni að morðunum fullyrða að vígamenn á vegum ríkisstjórnar Sýrlands hafi staðið að fjöldamorðunum. Þessi yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kemur á sama tíma og Kofi Annan erindreki samtakanna í landinu ræðir við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Að sögn talsmanns SÞ lítur út fyrir að færri en tuttugu af fórnarlömbunum hafi fallið í loftárásum eða af völdum skriðdrekaskothríðar. Hinir verið teknir af lífi í tveimur aðskildum árásum á þorp á svæðinu. Fjöldi barna eru á meðal hinna látnu.

Annan ræðir við al-Assad

Kofi Annan, erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi hittir í dag forseta landsins Bashar al-Assad í höfuðborginni Damaskus.

Neyðarfundur í Öryggisráðinu

Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna mun funda seinna í dag um stöðu mála í Sýrlandi. Atburðir í borginni Houla í Homs-héraði síðustu daga eru megin ástæða fundarins. Að minnsta kosti 90 létust í árásum stjórnarhersins á borgina í gær að sögn andspyrnuhópa í landinu.

Pútín segir pólitíska lausn vel mögulega í Sýrlandi

„Það eru ýmsir hagsmunir í húfi í átökunum og maður þarf að finna þau svæði þar sem þessir hagsmunir fara saman, og fá síðan alla aðila til að setjast að sama borði,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti um ástandið í Sýrlandi, sem farið hefur hríðversnandi undanfarna daga og vikur. „Það þarf ákveðna fagmennsku til og þolinmæði,“ bætti Pútin við og lofaði að beita sér fyrir því að jákvæð niðurstaða fáist.

Össur fordæmir voðaverk sýrlenskra stjórnvalda

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega voðaverk sýrlenskra stjórnvalda sem og vopnaðra sveita á þeirra ábyrgð en lítill vafi leikur á að þau hafi gerst sek um skipulögð og kerfisbundin mannréttindabrot undanfarnar vikur og mánuði að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×