Viðskipti erlent

Asos hættir að selja vörur úr ákveðnum dýraafurðum árið 2019

Sylvía Hall skrifar
Asos er ein vinsælasta netverslun í heimi og hefur vakið mikla lukku á meðal Íslendinga.
Asos er ein vinsælasta netverslun í heimi og hefur vakið mikla lukku á meðal Íslendinga. Vísir/Getty
Breska netverslunin Asos hefur gefið það út að hún muni hætta að selja vörur úr kasmírull, angóraull, fjöðrum og silki frá og með janúar 2019. Einnig mun fyrirtækið taka vörur sem gerðar eru úr dúni, tönnum og dýrabeinum úr sölu.

Netverslunin segist taka þetta skref með dýraverndunarsjónarmið í huga, en þau segja það vera óásættanlegt að dýr þjáist fyrir tísku- og snyrtivöruiðnaðinn. Dýraverndunarsamtökin Peta hafa fagna þessum tíðindum og segja neytendur vera hægt og rólega að ýta tískuheiminum í rétta átt með því að gera kröfur um fallegan fatnað sem er ekki á kostnað dýravelferðar.

Asos hefur einnig sagst ætla styðja rannsóknar- og þróunarvinnu í tengslum við regluverk um velferð dýra við fataframleiðslu. Þau vilja sjá auknar kröfur á framleiðendur.

Með þessu fylgir Asos í fótspórt fatarisa á borð við Zara, H&M og Topshop sem lofuðu í síðasta mánuði að hætta framleiðslu á vörum úr angóraull. Þetta er sagt vera sprottið upp frá yngri neytendum sem láta velferð dýra sig varða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×