Glamour

ASOS gagnrýnt fyrir að taka fram að fyrirsæta sé í yfirstærð

Ritstjórn skrifar
Fyrirsætan sem umræðir er í stærð 16 og er talin vera í yfirstærð af ASOS.
Fyrirsætan sem umræðir er í stærð 16 og er talin vera í yfirstærð af ASOS.
Það hefur verið mikil umræða innan tískusamfélagsins hvort að kalla eigi fyrirsætur sem eru ekki í minnstu stærðunum yfirstærð. Lengi vel voru fyrirsætur sem nota stærðir 12, 14 og 16 flokkaðar sem "plus-size" en vert er að hafa í huga að algengasta fatastærðin í Bretlandi er 18. 

Það er því frekar óeðlilegt að flokka konur sem eru ekki támjóar í yfirstærð ef þær eru ekki yfir kjörþyngd og eru í sömu stærð og meiri hluti kúnnahópsins. 

Breska fataverslunin ASOS birti í gær mynd á samfélagsmiðlum af fyrirsætu sem klæðist stærð 16 og skrifaði undir að hún væri í yfirstærð. Fylgjendurnir brugðust illa við og bentu á hvað það sjónarmið væri brenglað. 

ASOS var ekki lengi að breyta textanum sem fylgdi myndinni en svaraði þó nokkrum gagnrýnendum á Twitter eins og má sjá hér fyrir neðan. 






×