Íslenski boltinn

Ásmundur hættur hjá Fylki | Hermann tekur við

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Samsett mynd
Ásmundur Arnarsson er hættur sem þjálfari Fylkis en það kom fram í fréttatilkynningu frá félaginu í dag. Ásgeir Ásgeirsson, formaður knattspyrnudeildar Fylkis, staðfesti í samtali við Vísi í dag að Hermann Hreiðarsson hafi tekið við sem þjálfari meistaraflokks karla.

Hermann mun stýra liði Fylkis út leiktíðina að minnsta kosti. Staðan verður metin upp á nýtt að tímabilinu loknu að sögn Ásgeirs.

„Þetta var niðurstaða stjórnar og meistaraflokksráðs karla. Það var ákveðið að samstarf okkar við Ásmund væri komið á endastöð. Við vildum gera breytingar,“ sagði Ásgeir í samtali við Vísi í dag.

„Okkar væntingar eru klárlega meiri en gengi liðsins hefur verið í sumar,“ bætti hann við en síðasti leikur Fylkis undir stjórn Ásmundar var 4-0 tap liðsins gegn ÍBV í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar um helgina. Liðið er í sjöunda sæti Pepsi-deildar karla með þrettán stig.

„Hermann Hreiðarsson tekur við en Reynir Leósson verður áfram aðstoðarþjálfari og Kjartan Sturluson sömuleiðis sem markvarðaþjálfari,“ sagði Ásgeir sem játti því að félagið væri að líta í kringum sig varðandi það að styrkja leikmannahóp þess.

„Við skoðum alla leikmenn, bæði íslenska sem erlenda. Það verður bara að koma í ljós með nýjum þjálfara,“ sagði formaðurinn.

Ásgeir segir leiðinlegt að þurfa að skilja við Ásmund á þessum nótum. „Það er alltaf sorglegt þegar þetta þarf að enda á þennan máta. Ási er toppdrengur og við höfum staðið þétt við bakið á honum. Hans verður sárt saknað eftir þriggja og hálfs árs starf hjá Fylki. Þetta er öðlingsdrengur og samstarfið við hann hefur verið frábært.“

„Ásmundur sýndi þessu skilning, eins mikið og hægt er enda alltaf sárt þegar þetta verður niðurstaðan. Það væri óeðlilegt ef mönnum þætti það ekki erfitt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×