Innlent

Ásmundur: Lítilmannleg umræða í boði Pírata

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði ummæli Píratans fyrir neðan allar hellur.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði ummæli Píratans fyrir neðan allar hellur. Vísir/Vilhelm
„Það er fyrir neðan allar hellur að á þessum ræðustól skuli aðrar eins ávirðingar bornar á menn að ég get ekki þagað yfir því. Mér finnst þetta svo lítilmannlegt. Þetta er lítilmótleg umræða – og hún er í boði Pírata,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í dag.

Ásmundur vísaði til orða Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Pírata, sem sakaði Bjarna Benediktsson forsætisráðherra um lygar í ræðustól Alþingis. Björn Leví sagði ráðherrann hafa logið því í ræðustól í október í fyrra að skýrsla um eignir Íslendinga á aflandssvæðum væri í vinnslu – þegar skýrslan hafi í raun og veru verið tilbúin. Umrædd skýrsla hefur verið afar umdeild og hefur stjórnarandstaðan ítrekað sakað Bjarna um að hafa setið á skýrslunni fram yfir kosningar.

„Í þessu tilviki er hins vegar ráðherra tiltölulega vanhæfur vegna tengsla sinna við aflandsfélög og öll þessi tímalína og öll þessi ummæli benda einfaldlega til þess að ráðherra hafi logið af yfirlögðu ráði,“ sagði Björn Leví.

Ásmundur furðaði sig á því að forseti þingsins hafi ekki gert athugasemdir við orðbragð þingmannsins. Slík umræðuhefð sé ekki við hæfi á Alþingi.

„Píratar ætluðu að koma á þing til þess að breyta umræðuhefðinni. Þeir ætluðu að laga starfið í þinginu. Þeir voru á móti því hvernig þingmenn hefðu talað hérna. Við sem fórum í þingmannaskólann árið 2013, okkur var sagt að laga umræðuhefðina. Við höfum staðið við það – nema þið Píratarnir sem berið svona á fólk,“ sagði Ásmundur.

Bjarni Benediktsson hefur vísað ásökunum stjórnarandstöðunnar um að hafa setið á skýrslunni fram yfir kosningar alfarið á bug. Um er að ræða skýrslu sem unnin var af starfshópi á vegum fjármálaráðuneytisins, en hópurinn skilaði skýrslunni af sér í október síðastliðnum. Skýrslan var svo birt í síðasta mánuði, um þremur mánuðum eftir að starfshópurinn skilaði henni af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×