Viðskipti innlent

Áslaug Thelma Einarsdóttir ráðin forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá ON

Sæunn Gísladóttir skrifar
Áslaug hefur mikla reynslu í markaðs og kynningarmálum sem og orkumálum.
Áslaug hefur mikla reynslu í markaðs og kynningarmálum sem og orkumálum. Vísir/ON
Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Orku náttúrunnar (ON). Áslaug hefur mikla reynslu í markaðs og kynningarmálum sem og orkumálum. Hún var meðal annars forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Icelandair Group, verkefnisstjóri hjá Canadian Geothermal Energy Association og sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni Mannviti, segir í tilkynningu frá ON. Auk þess hefur hún sinnt ýmis konar ráðgjöf við markaðsmál og viðburðarstjórnun. Áslaug sat í stjórn Rio Tinto Alcan en sagði sig úr stjórninni þegar hún réði sig til ON.

Áslaug er með BA próf í vinnusálfræði frá Arizona State University og MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík.

Starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála er nýtt starf hjá ON en það varð til við aðskilnað sölu- og markaðsmála í skipulagi fyrirtækisins. Um 150 umsóknir bárust um starfið, sem auglýst var í ágúst. Áslaug mun hefja störf hjá ON á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×