Handbolti

Áskorun að halda fána Íslands á lofti í handboltanum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Katar skrifar
Íslenska þjálfarateymið á hliðarlínunni í gær.
Íslenska þjálfarateymið á hliðarlínunni í gær. Vísir/Eva Björk
Ísland féll í gær úr leik á HM í handbolta eftir öruggan sigur Dana á strákunum okkar í 16-liða úrslitum, 30-25. Frammistaða Íslands náði sjaldan þeim hæðum sem þurfti til að ná langt á þessu móti.

Strákarnir töpuðu einfaldlega fyrir betra liði í gær og það viðurkenndu þeir fúslega sjálfir í viðtölum við fjölmiðla eftir leikinn í gær. Danir nýttu sér enn einu sinni slaka byrjun íslenska liðsins í þessu móti og gerðu í raun út um raunhæfan möguleika Íslands á sigri á fyrsta stundarfjórðungnum. Svo slæm var byrjun okkar manna.

Fyrir leik sagði Aron Kristjánsson að lykilatriði fyrir Ísland væri að klára sóknirnar almennilega og standa af sér hröð áhlaup danska liðsins. Það gekk engan veginn upp í upphafi leiksins í gær. Strákarnir tóku þvinguð skot sem Niklas Landin átti ekki í erfiðleikum með og lokaði hann hreinlega markinu fyrstu sjö mínútur leiksins. Á þeim tíma komst Danmörk 6-0 yfir og Ísland átti aldrei endurkomuleið.

Vantar að höggva á hnútinn

Sú var tíðin að Ísland gat nánast bókað sigur í sínum leikjum ef varnarleikur og markvarsla liðsins var nógu góð til að halda andstæðingnum undir 30 mörkum. Sóknin sá svo um rest. En þetta vopn íslenska liðsins virðist vera minningin ein í dag.

„Ég hef áhyggjur af skotógnuninni utan af velli,“ sagði Aron Kristjánsson eftir leikinn í gær. „Öll bestu liðin í keppninni eru með leikmenn sem höggva á hnúta með langskotum. Það dregur varnirnar fram, hægt er að vinna betur með línumanni og allir fá meira pláss,“ sagði Aron.

„Okkur tókst að skora 28 mörk gegn framliggjandi vörn Egyptalands en í dag spiluðum við gegn danskri 6-0 vörn sem er með sterkan markvörð þar að auki. Það var erfitt.“

Eins og Aron bendir á virtist sóknarleikurinn einungis í lagi gegn Egyptalandi en heilt yfir var hann vandamál í þessu móti – því varnarleikurinn var oftast í lagi og frammistaða Björgvins Páls Gústavssonar í mótinu var mun betri en margir þorðu að vona fyrirfram.

Frekari kynslóðaskipti í vændum

Aron hrósaði leikmönnum fyrir baráttu og dugnað, ekki síst við erfiðar aðstæður gegn Egyptalandi þar sem liðið var nýbúið að missa Aron Pálmarsson úr hópnum. En hann segir að liðið hafi mætt ofjarli sínum í gær.

Margir lykilmenn Íslands voru á löngum köflum ólíkir sjálfum sér og aðspurður um framtíð íslenska liðsins segir hann ljóst að ákveðnar breytingar séu í vændum.

„Við höfum verið á mörkum kynslóðaskipta en ákváðum að gefa þessum hópi leikmanna sem er hér tækifæri til að kalla fram toppframmistöðu á stórmóti. En það þarf að huga að þessum skiptum og taka í réttum skrefum. Nú förum við heim, skoðum þetta mót vandlega og metum næstu skref,“ sagði Aron.

Næsta verkefni er að koma Íslandi á EM 2016 og Aron segir að það sé gríðarlega mikilvægt. „Tíminn er ótrúlega knappur og við fáum fáar æfingar fyrir hvern leik. Það er því ekki hægt að gera margar breytingar strax en kannski einhverjar,“ segir hann.

„Aðalatriðið er að allir séu heilir heilsu og reiðubúnir að takast á við þá áskorun að halda fána Íslands á lofti í handboltanum,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Snorri: Mótið er vonbrigði

Snorri Steinn Guðjónsson var svekktur með tapið gegn Dönum. Hann segir að liðið hafi ekki spilað vel í mótinu og vonar að Íslendingur verði heimsmeistari.

Björgvin Páll: Súrt að falla úr leik á móti Dönum

Björgvin Páll Gústavsson varði tuttugu skot á móti Dönum í kvöld og var enn einu sinni besti leikmaður mótsins. Björgvin Páll var veikur í gær og um tíma óvíst hvort hann gæti spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×