Bílar

Askja með fjórar tegundir tengiltvinnbíla frá Mercedes-Benz

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz GLE.
Mercedes Benz GLE.
Bílaumboðið Askja býður til glæsilegrar Mercedes-Benz Plug-in Hybrid sýningar nk. laugardag kl. 12-16. Askja býður nú þegar til afhendingar fjórar tegundir af Mercedes-Benz bifreiðum í Plug-in Hybrid útfærslu eða með svonefndum tengiltvinnbúnaði.

Um er að ræða sportjeppanna GLE og GLC auk C-Class og S-Class. Mercedes-Benz áætlar að fyrir lok árs 2017 verði 10 mismunandi gerðir Plug-in Hybrid bíla komnir á markað. Segja má að tengiltvinntæknin séu það nýjasta og eftirtektarverðasta í bílageiranum.

Tengiltvinnbílar hafa brunavél og rafmótor og bjóða því upp á mikið afl en einnig mjög litla eldsneytiseyðslu. Þessi gerð bíla er því talin afar umhverfismild. Drægnin á rafgeyminum einum saman er 20-40 km eftir gerðum og er þá miðað við bestu aðstæður. Tengiltvinnbíll getur þannig ekið á rafmagninu en síðan tekur brunavélin við þegar rafgeymirinn tæmist. Hægt er að setja bílinn í samband við rafmagn og þannig er hann hlaðinn í venjulegri heimilisinnstungu sem er 230V/16A.

Með þessu er tæknin farin að nálgast rafbílinn. Þrátt fyrir mikinn kraft, þar sem til dæmis GLE jeppinn skilar 333 hestöflum í bensínvél og 116 hestöflum með rafmótor þá er þessi 449 hestafla tengiltvinnbíll frá Mercedes-Benz að ná framúrskarandi árangri í eyðslutölum, eða allt frá 3,3 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Þá er koltvísýringslosunin mjög lág. Hröðun GLE Plug in Hybrid er einnig mjög mikil og tekur aðeins 5,3 sekúndur að ná 100 km hraða.






×