ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 22. maí 2012 13:20
ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðunum og undirbýr nú málaferli. Vegið er að lífeyrissjóðskerfinu með skattheimtu og ágengni stjórnmálamanna segir fyrrverandi forseti sambandsins. Hiti var í mönnum á ráðstefnu um framtíð lífeyrismála í gær en þar kom meðal annars fram að Alþýðusamband Íslands væri með málaferli á hendur ríkinu í undirúningi vegna fjársýsluskatts sem lagður er á lífeyrissjóði og banka. Gylfi Arnbjörnsson segir skattlagninguna koma verr niður á þeim sem eiga réttindi í almennum lífeyrissjóðum en þeim sem hafa greitt í opinbera sjóði sem ríki og sveitarfélög ábyrgjast. Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag en þar segir Gylfi almenna lífeyrissjóði verða að skerða greiðslur til sinna lífeyrisþega vegna skattlagningarinnar, en sama eigi ekki við um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna því þó þeir sjóðir þurfi að greiða skattinn mun ríkið á sama tíma leggja þeim til fjármuni til að sjá til þess að skatturinn hafi ekki áhrif á stöðu sjóðsfélaganna. Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, tók einnig til máls á ráðstefnunni og sagði að nú væri mál að standa saman og verja lífeyrissjóðskerfið sem upp hafi verið byggt. „Og af því er vegið með skattheimtu og ágengni af hálfu stjórnmálamannanna í þessa fjármuni. Það er alveg eins og með litlu gulu hænuna sem fann fræ. Þegar hún er búin að baka kökuna þá geta allir verið með, það geta allir deilt út peningum sem eru komnir í sjóð en það bara má ekki leyfa þeim að gera það. Og mér finnst að lífeyrissjóðirnir eigi að vera skýrari og afdráttarlausari í afstöðu sinni með það að það kemur ósköp einfaldlega ekki til greina, þeir hafa engan rétt til þess að deila út þeim fjármunum sem við ætlum að lifa á til dauðadags," segir Ásmundur Stefánsson fyrrverandi forseti ASÍ.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira