Viðskipti innlent

ASÍ: Kjara­samningum verður ekki sagt upp

atli ísleifsson skrifar
Úr kröfugöngu í miðborg Reykjavíkur 1. maí 2016.
Úr kröfugöngu í miðborg Reykjavíkur 1. maí 2016. Vísir/Vilhelm
Samninganefnd ASÍ hefur ákveðið að undangengnum fundarhöldum í baklandi stéttarfélaganna að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Í sameiginlegri yfirlýsingu samninganefndar aðildarsamtaka ASÍ og framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins kemur fram að forsendunefnd ASÍ og SA hafi metið það svo að tvær af þremur forsendum endurskoðunar kjarasamninga standist en ein geri það ekki. Sú forsenda snýr að launaþróun annarra hópa

Niðurstaða samninganefndanna er að fresta viðbrögðum vegna forsendubrestsins þar til í febrúar 2018.

„Forsendurnar sem voru til skoðunar eru þessar:

1. Fjármögnun stjórnvalda á stofnframlögum ríkisins til 2.300 almennra íbúða á árunum 2016-2019 eða að hámarki 600 á ári.

2. Mat á því hvort sú launastefna og þær launahækkanir sem í samningnum fólust hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra á vinnumarkaði (32% hækkun frá nóv 2013-des 2018).

3. Aukinn kaupmáttur á samningstímanum.

Ljóst er að liðir 1 og 3 standast skoðun en liður 2 er forsendubrestur eins og áður segir. Er það mat samninganefndar ASÍ að ákveðin verðmæti séu í núgildandi samningi (4,5% almenn launahækkun 1. maí og hækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð um 1,5% 1. júlí) auk þess sem lítill áhugi er á því að almenni markaðurinn fari fyrstur í þeim kjaraviðræðum sem framundan eru, en mörg opinberu félaganna eru með lausa samninga síðar á þessu ári,“ segir í tilkynningunni frá ASÍ.

Sjá má yfirlýsingu SA og ASÍ í viðhengi að neðan.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×