Innlent

ASÍ, SA og ráðherra segja loforð Sjálfstæðismanna óskynsamleg

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sjálfstæðismenn klappa fyrir formanni sínum á landsfundi flokksins fyrir um tveimur árum.
Sjálfstæðismenn klappa fyrir formanni sínum á landsfundi flokksins fyrir um tveimur árum. Vísir/Daniel
Þorsteinn Víglundsson, sitjandi jafnréttismálaráðherra og frambjóðandi Viðreisnar, spyr sig hvernig Sjálfsstæðisflokkurinn ætli sér að fjármagna kosningaloforð sín þegar „það er augljóst að það er ekki svigrúm fyrir þessar skattalækkanir í nýsamþykktri ríkisfjármálaáætlun sem flokkurinn stóð að.“

Sjálfstæðisflokkurinn hefur heitið því í kosningabaráttu sinni að verja 100 milljörðum í innviðauppbyggingu á næstu árum, sem fjármögnuð verður með einskiptistekjum úr bankakerfinu, á sama tíma og hann hyggst lækka skatta - „sem samsvarar um 30-40 milljarða tekjulækkun á ári fyrir ríkissjóð,“ eins og Þorsteinn reifar á Facebooksíðu sinni.

Þorsteinn Víglundsson starfaði með Sjálfstæðismönnum í fráfarandi ríkisstjórn.Vísir/Eyþór
Segir hann Sjálfstæðisflokkinn hljóta að þurfa að útskýra hvar hann ætli að skera niður í ríkisrekstrinum til að fjármagna loforðin. „Varla á að skera niður í heilbrigðis- og velferðarkerfinu til að fjármagna skattalækkanir Sjálfstæðisflokksins?“ spyr Þorsteinn.

ASÍ og SA á sama máli

Þá hnýtir hann jafnframt í Sjálfstæðismenn fyrir að vilja verja einskiptistekjunum í aukin útgjöld í stað þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs, sem segja má að hafi verið aðalsmerki Sjálfstæðisflokksins á síðustu árum. Tekur hann þar í sama streng og hagdeild ASÍ sem segir að útgjaldaloforð flokksins samhliða fyrirheitum um skattalækkanir stangist á við sjálfbærnimarkmið laga um opinber fjármál. 

Haft er eftir hagdeildinni, sem og hagfræðingum Samtaka atvinnulífsins, í nýjasta hefti Stundarinnar, að æskilegast sé að nota einskiptistekjur hins opinbera, svo sem arðgreiðslur til ríkisins vegna lækkunar eiginfjár viðskiptabankanna, til að greiða niður skuldir frekar en til að stórauka útgjöld til innviðauppbyggingar. Sjálfstæðisflokkurinn, VG og Samfylking hafa talað fyrir því að verja arðgreiðslum með þessu hætti.

„Með því er horfið frá þeirri ábyrgu stefnu að óreglulegar tekjur séu nýttar til að lækka skuldir og vaxtabyrði ríkisins til allrar framtíðar, svo kostnaðinum sé ekki velt yfir á börnin okkar. Það fer minna fyrir ábyrgðinni í Valhöll nú en fyrir nokkrum vikum síðan,“ segir Þorsteinn. 

Færslu hans má sjá hér að neðan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×