Glamour

Ashley Graham landar sinni fyrstu Vogue forsíðu

Ritstjórn skrifar
Ashley Graham hefur verið á hraðri uppleið á þessu ári.
Ashley Graham hefur verið á hraðri uppleið á þessu ári. Skjáskot/Vogue
Árið 2016 hefur verið ansi stórt hjá Ashley Graham en hún var fyrsta fyrirsætan í „yfirstærð“ til þess að sitja fyrir á forsíðu sundfataútgáfu Sports Illustrated, hún var nefnd ein af konum ársins hjá Glamour í Bretlandi sem og að hún fékk sína eigin Barbie dúkku. 

Til þess að kóróna þetta frábæra ár hjá ofurfyrirsætunni hefur hún núna landað sinni fyrstu Vogue forsíðu. Graham situr fyrir á forsíðu janúar tölublaðs breska Vogue. 

Forsíðuþátturinn er skotinn af Patrick Demarchelier og á forsíðunni klæðist hún ofur svölum leðurjakka frá Coach. 






×