Viðskipti innlent

Ásgeir Pálsson endurkjörinn formaður NATSPG

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia.
Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia. mynd/aðsend
Á fundi ICAO (Alþjóðaflugmálastofnunarinnar) í París í síðustu viku var Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia endurkjörinn formaður NATSPG (North Atlantic Systems Planning Group) til næstu fjögurra ára. Ásgeir hefur verið formaður nefndarinnar lengur en nokkur forvera hans eða frá árinu 1997. 

Í tilkynningu segir að hlutverk NATSPG sé að annast eftirlit með gæðum flugleiðsöguþjónustu innan NAT svæðis ICAO, en það spannar loftrýmið yfir Atlantshafinu frá norðurpól að 45 gráðum norðlægrar breiddar. Einnig stjórni NATSPG innleiðingu nýrrar tækni, vinnuaðferða og staðla. 

Aðildarlönd NATSPG eru Bandaríkin, Kanada, Ísland, Noregur, Danmörk, Stóra Bretland, Írland, Frakkland og Portúgal. Auk þeirra taka þátt fulltrúar frá IATA (alþjóðasamtökum flugfélaga), IBAC (alþjóðasamtökum flugrekenda einkavéla), IFALPA (alþjóðasamtök flugmanna), IFATCA (alþjóðasamtökum flugumferðastjóra) og INMARSAT (veitanda gervihnattaþjónustu).

Isavia annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi og stýrir jafnframt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Eitt af hlutverkum Isavia er að tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar alþjóðlegar öryggiskröfur og aðferðir. 

„Það er því mikill heiður fyrir Isavia og starfsemi félagsins að Ásgeir hafi verið endurkjörinn formaður skipulagsnefndar ICAO fyrir Norður Atlantshaf," segir í tilkynningunni frá Isavia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×