Handbolti

Ásgeir Örn reyndi við frönskuna en Robbi hélt sig við enskuna

Ásgeir Örn í leik með PSG.
Ásgeir Örn í leik með PSG. vísir/getty
Íslendingaliðið PSG vann auðveldan sigur í franska handboltanum í kvöld og það var létt yfir okkar mönnum - Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Róberti Gunnarssyni - eftir leikinn.

PSG skellti þá Dijon, 41-22, og er þrem stigum á eftir toppliði Dunkerque þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Þeir félagar voru báðir í viðtal hjá sjónvarpsstöð félagsins eftir leik. Ásgeir Örn sýndi þá lipra takta á frönskunni á meðan Róbert hélt sig við enskuna. Ásgeir fór reyndar síðan í enskuna líka.

Hér má sjá viðtöl eftir leik kvöldsins.
PSG Handball - Dijon : les réactions d'après match by ParisSaintGermainHandball

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×