Handbolti

Ásgeir Örn markahæstur hjá Nimes í sigurleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ásgeir Örn skoraði sex mörk í kvöld.
Ásgeir Örn skoraði sex mörk í kvöld. vísir/eva björk
Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk og var markahæstur í naumum sigri Nimes gegn Chambéry í frönsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Nimes hafði nauman sigur, 25-24, en sigurmarkið skoraði Damien Scaccianoce á síðustu sekúndu leiksins fyrir heimamenn.

Ásgeir Örn var markahæstur í sínu liði með sex mörk úr 13 skotum en næsti maður skoraði þrjú mörk.

Nimes siglir lygnan sjó í deildinni, er í sjöunda sæti með 23 stig eftir sigurinn í kvöld.

Snorri Steinn Guðjónsson hafði hægt um sig og skoraði aðeins eitt mark fyrir Sélestad sem tapaði, 33-27, fyrir Istrés á útivelli.

Sélstad er fallið úr deildinni, en Snorri Steinn verður ekki áfram í herbúðum þess heldur gengur hann í raðir Ásgeirs Arnar og félaga í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×