Íslenski boltinn

Ásgeir Börkur reifst við stjórnarmann: Var klárað á staðnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásgeir Börkur með Ásgeiri Ásgeirssyni, formanni knattspyrnudeildar Fylkis.
Ásgeir Börkur með Ásgeiri Ásgeirssyni, formanni knattspyrnudeildar Fylkis. Vísir/Stefán
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fyrirliði Fylkis, staðfesti í samtali við Vísi í dag að hann hafi rifist við stjórnarmann Fylkis eftir 4-0 tap liðsins gegn ÍBV í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar um helgina.

„Þetta voru tveir fullorðnir karlmenn að ræða málin. Við vorum ósáttir við skelfilegan leik í Eyjum. Við í Árbænum höfum tilfinningar og þetta er bara eitthvað sem gerðist. Þetta er búið í dag,“ sagði Ásgeir Börkur.

„Svo það sé alveg á hreinu þá hafði þetta engin áhrif á það sem gerðist í dag,“ bætti hann við en Ásmundur Arnarsson var í dag rekinn sem þjálfari Fylkis og Hermann Hreiðarsson ráðinn í hans stað.

„Það er ekki mitt að meta hvort það hafi verið rétt ákvörðun. Við erum með menn í stjórninni sem stjórna þessum málum. Ási gerði flotta hluti í Árbænum og verður aldrei gert lítið úr því.“

Hann segist ekkert nema gott um Hermann að segja. „Hann býr í Árbænum og maður sér hann á leikjum karla- og kvennaliðsins. Maður veit hvaða mann hann hefur að geyma. Ég býð hann velkominn til starfa.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×