Lífið

Ásdís Rán mætti með kærastann á tískusýningu

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Parið Jóhann Wium og Ásdís Rán.
Parið Jóhann Wium og Ásdís Rán. vísir/stefán
Árleg herrafatasýning verslunarinnar Kormáks og Skjaldar var haldin með pompi og prakt í Þjóðleikhúskjallaranum á þriðjudagskvöld.

Á sýningunni var meðal annars kynnt ný herrafatalína Kormáks og Skjaldar í samstarfi við Gunnar Hilmarsson og starfsmenn verslunarinnar.

Boðið var upp á skemmtiatriði og uppistand, en sýningin markar upphaf jólaundirbúnings hjá mörgum og er talin einn af hápunktum skemmtanalífs Reykjavíkur.

Aron Bergmann Magnússon stillti sér upp með þessum forláta krókódíl.
Þeir Jakob H. Magnússon, Bjarni Snæðingur og Hreinn Breiðfjörð voru hæstánægðir með sýninguna.
Þessi piltur var klæddur í glæsilegan golffatnað.
Kormákur Geirharðsson lét sitt ekki eftir liggja.
Eigendur GK Reykjavík og SUIT, þau Guðmundur Hallgrímsson og Ása Ninna Pétursdóttir.
Leikarinn Vignir Rafn Valþórsson leikari sýndi sínar bestu hliðar.
Herramennirnir stilltu sér upp í lok sýningar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×