Lífið

Ásdís hittir Ungfrú silikonbrjóst 2014 - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá síðasta sjónvarpsþátt Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur sem ber yfirskriftina Heimur Ísdrottningarinnar og var á dagskrá Stöðvar 2. Í þættinum tekur Ásdís meðal annars við verðlaunum í Búlgaríu og ræðir við konu sem ber titilinn Ungfrú silikonbrjóst 2014.

Hver er þetta sem þú tekur viðtal við á rauða dreglinum? Hún heitir Júlíanna. Ég rakst á hana þarna á eventinum. Mér fannst tilvalið að reyna að negla hana í smá spjall að gamni þar sem hún er frekar áhugaverð í útliti og vel þrýstin. Hún er víst playmate eða leikfélagi ársins í búlgarska Playboy og Ungfrú silikon 2014 eða Miss Silikon," segir Ásdís.

Náttúrulegt að vera fyrir framan kameruna

Hvernig á fjölmiðlastarfið við þig eftir þessa þáttaröð? Mjög vel. Ég væri alveg til í að vinna meira á þessu sviði. Það er mjög náttúrulegt fyrir mig að vera fyrir framan kameruna enda búin að vera þar síðustu ár. Þetta var síðasti þátturinn af Heimi Ísdrottningarinnar."

Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni og gaman að fá að sýna frá London myndatökunum, heimaslóðum í Búlgaríu og fleira," svarar Ásdís.

Vinnur að nokkrum góðum hugmyndum

Mig grunar að ég eigi nú eftir að fara aðeins meira inn á þetta svið og ég er að vinna að nokkrum góðum hugmyndum fyrir haustið sem vonandi ganga upp. Þetta er alltaf spurning um að gera sem fjölbreytt og áhugavert afþreyingarefni fyrir sjónvarp. Það nenna ekki allir að horfa bara á matreiðsluþætti eða þurra útilífsþætti.  Það er víst einhver ástæða fyrir vinsældum E-channel," segir Ásdís hlæjandi áður en kvatt er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×