Sport

Ásdís: Ótrúlega leiðinlegt að hafa lent í þessu núna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásdís Hjálmsdóttir gat ekki leynt vonbriðgum sínum eftir síðasta kastið.
Ásdís Hjálmsdóttir gat ekki leynt vonbriðgum sínum eftir síðasta kastið. Vísir/Anton
Ásdís Hjálmsdóttir varð í næstsíðasta sæti í undankeppni í spjótkasti kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt.

29 köstuðu lengra en Ásdís í undankeppninni en hún átti tvö algjörlega misheppnuð köst (gerði bæði ógild) og eitt sem var bara 54,92 metrar.

Ásdís hefði samt þurft að kasta 61,63 metra til þess að komast í úrslitin og því hefði þurfti hennar besta kast á árinu.

„Þetta átti ekki að fara svona, það er alveg rétt hjá þér," sagði Ásdís Hjálmsdóttir eftir undankeppnina í nótt.

„Það gekk allt rosalega vel í upphituninni, alveg svakalega vel. Upphitunin út á velli var frábær og inn á velli líka," sagði Ásdís sem lítur mjög vel út og er augljóslega í frábæru formi.

Sjá einnig:  Ásdís komst ekki í úrslit | Endaði í 30. sæti í spjótkastinu

„Svo bara byrjaði ég í keppninni. Ég hef aldrei verið í betra formi, búin að fá fulla hvíld og hef aldrei í rauninni verið í svona góðu formi. Ég var alltof, alltof hröð í atrennunni og hef aldrei verið svona hröð," sagði Ásdís.

„Ég var alltof nálægt línunni í fyrsta kastinu. Ég færi mig aftur um þrjú fet og þá er ég alltof nálægt línunni aftur. Ég færi mig aftur um tvö fet og er samt alltof nálægt," sagði Ásdís.

„Það er hægt að líta á þetta bæði jákvæðum augum og neikvæðum augum. Það er náttúrulega jákvætt að vera í svona góðu formi og að þetta sé ástæðan en ekki eitthvað annað. Ég er ekki meidd og það er ekki þess vegna sem ég var að kasta illa," sagði Ásdís.

„Auðvitað er þetta ótrúlega leiðinlegt að hafa lent í þessu núna," sagði Ásdís en hvað var að í nótt.

„Ég var bara alltof hröð í atrennunni og alltof nálægt línunni. Þegar þú ert of nálægt línunni þá getur þú ekki klárað kastið. Ef ég hefði klárað kastið þá hefði ég bara farið yfir línuna og gert ógilt," sagði Ásdís.

„Ég vona að ég fái eitt mót í viðbót til að ná út úr mér því sem ég hef inn í mér núna," sagði Ásdís.


Tengdar fréttir

Aldrei verið í betra formi

Terry McHugh, þjálfari Ásdísar Hjálmsdóttur, hrósar bæði líkamlega og andlega þættinum hjá þessum 31 árs gamla spjótkastara sem keppir í nótt á Ólympíuleikum í þriðja sinn. Stefnan er sett á úrslitin en til þess þarf að kasta 63 metra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×